Infinity Tiny Ring hálsmen – Vera Design
Fallegt hálsmen úr Infinity skartgripalínunni frá Vera Design. Infinity Tiny hálsmenið með silfurhring sem er settur sirkon steinum.
- Rhodiumhúðað silfur
- Zirkon steinar
- Kemur með tveimur keðjum, 45cm keðju og 80cm kúlukeðju
-
Fjögur hálsmen í einu, plús hringur ef stærðin passar á fingur.
Infinity skartgripalínan er sú vinsælasta hjá Vera Design – innblásin af hönnun Guðbjarts Þorleifssonar gullsmiðs – unnin úr 925 sterling silfri. Helstu einkenni Infinity línunnar eru táknin sjö, sem hvert hefur sína sérstöku merkingu.
Upphaf – heilagur andi – dauði kristins – síðasta máltíðin – frumkristni – trú, von og kærleikur – endir.
Tímalaus hönnun sem hentar við öll tækifæri.